Níu íslensk mörk hjá Löwen

Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson
Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu samtals níu mörk þegar Rhein-Neckar Löwen sigraði Göppingen í þýska handboltanum í dag. 

Löwen hafði betur 35:26 og sleit sig frá Göppingen í síðari hálfleik eftir að staðan var 16:16 að loknum fyrri hálfleik. 

Alexander skoraði 5 og Guðjón Valur 4 fyrir Löwen sem er í 4. sæti en liðið á leik til góða á liðin sem eru fyrir ofan. Útlit er því fyrir að Löwen verði í toppbaráttunni í vetur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert