Töpuðu dýrmætu stigi

Ólafur Guðmundsson skoraði fjögur mörk í kvöld.
Ólafur Guðmundsson skoraði fjögur mörk í kvöld.

Sænsku meistararnir Kristianstad með þrjá íslenska landsliðsmenn innanborðs misstu af dýrmætu stigi á heimavelli í kvöld þegar þeir gerðu jafntefli, 29:29, við Meshkov Brest frá Hvíta-Rússlandi í Meistaradeild Evrópu í handknattleik.

Ólafur Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad í leiknum og Gunnar Steinn Jónsson 3 en Arnar Freyr Arnarsson náði ekki að skora.

Kristianstad er með 4 stig og í sjöunda sæti af átta liðum í A-riðli Meistaradeildarinnar. Celje Lesko með 5 stig og Meshkov Brest með 9 eru næst þar fyrir ofan en sex efstu lið riðilsins komast í 16-liða úrslit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert