Þórey vann Íslendingaslaginn

Þórey Rósa Stefánsdóttir átti góðan leik í dag.
Þórey Rósa Stefánsdóttir átti góðan leik í dag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Þórey Rósa Stefánsdóttir hafði betur gegn Sunnu Jónsdóttur er lið þeirra mættust í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Þórey skoraði fimm mörk fyrir Vipers Kristiansand og Sunna eitt fyrir Halden. Vipers vann leikinn 33:24. 

Vipers er í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Larvik á meðan Halden er í tíunda sæti af tólf liðum. 

Larvik vann Sola, lið Evu Davíðsdóttur, 31:25. Eva skoraði eitt mark í leiknum en lið hennar er í 9. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert