Alls voru 14 íslensk mörk skoruð í frönsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Guðmundur Hólmar Helgason skoraði fimm mörk fyrir Cesson Rennes sem mátti þola 35:31 tap gegn Toulouse, en Geir Guðmundsson komst ekki á blað hjá Cesson.
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fimm og Snorri Steinn Guðjónsson fjögur mörk fyrir Nimes í 28:25 tapi gegn Saran.
Nimes er í 8. sæti deildarinnar með 13 stig og Cesson Rennes er í 12. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá fallsæti, en 14 lið leika í deildinni.