15 marka sigur hjá Íslendingaliðinu

Janus Daði skoraði fjögur mörk í stórsigri Aalborg í kvöld.
Janus Daði skoraði fjögur mörk í stórsigri Aalborg í kvöld. Ljósmynd/http://aalborghaandbold.dk

Aalborg burstaði Midtjylland með 15 marka mun, 34:19, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Janus Daði Smárason skoraði 4 mörk fyrir Aalborg, Stefán Rafn Sigurmannsson 3 og Arnór Atlason 1. Aalborg, undir stjórn Arons Kristjánssonar, náði með sigrinum fimm stiga forskoti á Tvis Holstebro á toppi deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert