Aron tryggði Veszprém bikarinn

Aron Pálmarsson í úrslitaleiknum í dag.
Aron Pálmarsson í úrslitaleiknum í dag. Ljósmynd/Heimasíða Veszprém

Aron Pálmarsson og félagar í Veszprém eru ungverskir bikarmeistarar í handbolta eftir nauman 23:22 sigur á Pick Szeged í úrslitaleik í dag. Aron skoraði fimm mörk í leiknum og var næst markahæstur síns liðs en hann skoraði sigurmarkið úr vítakasti þegar leiktíminn var úti.

Gašper Marguč skoraði sjö mörk fyrir Veszprém, sem var 13:9 yfir í hálfleik. Pick Szeged saxaði á forskot Veszprém í síðari hálfleik en það dugði ekki til. 

Þetta er níunda árið í röð sem Veszprém vinnur ungverska bikarinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert