Pereira áfram með Haukunum

Maria Pereira í leik með Haukunum.
Maria Pereira í leik með Haukunum. mbl.is/Árni Sæberg

Portúgalska landsliðskonan Maria Pereira hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild Hauka.

Pereira, sem leikur í stöðu skyttu og miðjumanns, hefur leikið stórt hlutverk með Haukum en hún kom til liðsins fyrir síðustu leiktíð. Pereira var markahæsti leikmaður Hafnarfjarðarliðsins í deildinni á tímabilinu þar sem hún skoraði 104 mörk í 21 leik en Haukar höfnuðu í þriðja sæti og mæta Fram í undanúrslitunum sem hefjast á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert