Sigur hjá lærisveinum Alfreðs

Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk í sigurleik Füchse Berlín …
Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk í sigurleik Füchse Berlín í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel lögðu Göppingen, 31:27, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.

Marko Vujin skoraði 8 mörk fyrir Kiel og Nicklas Ekberg skoraði 7 og Kiel í þriðja sæti deildarinnar með 45, stig, Flensburg er með 46 og Rhein-Neckar Löwen 47 en Kiel hefur leikið tveimur leikjum meira en hin tvö liðin.

Rúnar Kárason og félagar hans í Hannover-Burgdorf töpuðu enn einum leiknum en liðið lá fyrir Füchse Berlin, 34:27. Þetta var tíundi tapleikur Hannover í röð. Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk fyrir Berlínarliðið en Rúnar komst ekki á blað en hann fékk lítið að spreyta sig eins og í undanförnum leikjum. Füchse er með 44 stig í fjórða sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert