Sävehof vann þrjá leiki í röð

Atli Ævar Ingólfsson
Atli Ævar Ingólfsson mbl.s/Ómar

Sävehof, lið Atla Ævars Ingólfssonar, snéri við vonlítilli stöðu í 8-liða úrslitum um sænska meistaratitilinn í handbolta og er komið áfram í undanúrslit. 

Sävehof lenti 2:0 undir gegn Redbergslid en vann þrjá leiki í röð og komst áfram. Oddaleikurinn fór fram í dag og þar hafði Sävehof betur 25:23 á útivelli. 

Atli Ævar skoraði eitt mark af línunni fyrir Sävehof í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert