Vistaskipti Magnúsar Óla staðfest

Magnús Óli Magnússon er nýr liðsmaður Íslands- og bikarmeistara Vals …
Magnús Óli Magnússon er nýr liðsmaður Íslands- og bikarmeistara Vals í handknattleik. Ljósmynd/Valur

Magnús Óli Magnússon hefur skrifað undir tveggja ára samning við Íslands- og bikarmeistara Vals í handknattleik. Magnús hefur leikið með Ricoh í Svíþjóð síðustu tvö keppnistímabil en þar áður lék hann með FH og var m.a. valinn besti leikmaður FH tímabilið áður en hann fór til Ricoh sumarið 2015.

Magnús á einnig fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert