Ragnar atkvæðamikill í toppslag

Ragnar Jóhannsson.
Ragnar Jóhannsson. Ljósmynd/Mark Thürmer

Lærisveinar Aðalsteins Eyjólfssonar í þýska B-deildarliðinu Hüttenberg unnu Bieteigheim, 30:25, í toppslag deildarinnar í dag.

Ragnar Jóhannsson skoraði 6 mörk fyrir Hüttenberg sem er í öðru sæti deildarinnar með 49 stig en Bieteigheim er í fjórða sætinu með 46 stig. Aron Rafn Eðvarðsson varði 4 skot í marki liðsins.

Hüttenberg stendur nú vel að vígi með að komast upp í efstu deild en N-Lübbecke er með 60 stig og þegar komið upp. Hüttenberg, Rimpar, Bietigheim og Friesenheim berjast um hin tvö sætin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert