Lærimeyjar Þóris unnu Frakka aftur

Nora Mörk var atkvæðamikil í dag.
Nora Mörk var atkvæðamikil í dag. AFP

Norska kvennalandsliðið í handknattleik hafði betur gegn því franska 23:22 í æfingaleik í Noregi í dag. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og var staðan í hálfleik 13:13.

Kari Brattset skoraði sigurmark norska liðsins tæplega mínútu fyrir leikslok. Veronica Kristiansen og Nora Mørk voru markahæstar hjá Norðmönnum með sex mörk og Laurisa Landre gerði fjögur fyrir Frakka. 

Þetta er annar sigur norska liðsins á því franska í vináttuleik á þremur dögum. Næstu verkefni norska liðsins eru leikir gegn Úkraínu og Sviss í undankeppni EM, næstkomandi september. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert