Makedónía vann riðilinn

Kiril Lazarov og félagar í liði Makedóníu unnu riðilinn.
Kiril Lazarov og félagar í liði Makedóníu unnu riðilinn. mbl.is/Golli

Makedóníumenn stóðu uppi sem sigurvegarar í 4. riðli undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik eftir stórsigur á Tékkum, 33:20, í lokaumferðinni í kvöld.

Makedónía fékk 7 stig, Tékkland 6, Ísland 6 og Úkraína 5 stig. Þrjú efstu liðin fara öll á EM 2018 í Króatíu en Úkraína situr eftir með sárt ennið eftir skellinn gegn Íslandi í Laugardalshöll í kvöld.

Tékkar voru þegar öruggir með sæti á EM fyrir leikinn í Skopje í kvöld en Makedónía þurfti stig til að vera örugg með að komast áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert