Ýmir Örn inn í stað Gunnars Steins

Ýmir Örn Gíslason, lengst til hægri, er í landsliðshópnum fyrir …
Ýmir Örn Gíslason, lengst til hægri, er í landsliðshópnum fyrir leikinn í kvöld. mbl.is/Golli

Valsarinn Ýmir Örn Gíslason er í landsliðshóp íslenska landsliðsins í handbolta fyrir leikinn mikilvæga gegn Úkraínu í Laugardalshöll kl. 18:45 í kvöld. Hann kemur inn í hópinn í stað Gunnars Steins Jónssonar sem verður ekki með að þessu sinni. 

Þetta er í fyrsta skipti sem Ýmir Örn verður í leikmannahóp íslenska landsliðsins í mótsleik. Hann fór með liðinu til Tékklands fyrir helgi, en hann var ekki á leikskýrslu. Ágúst Elí Björgvinsson og Atli Ævar Ingólfsson voru kallaðir inn í hópinn eftir leikinn gegn Tékkum, en þeir taka ekki þátt í leiknum í kvöld. 

Ísland tryggir sér þátttökurétt á lokamóti Evrópumótsins í Króatíu með sigri í kvöld, en með tapi eða jafntefli á íslenska liðið ekki möguleika á að fara í lokakeppnina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert