Aron búinn að fullkomna hópinn

Aron Kristjánsson.
Aron Kristjánsson. mbl.is/Styrmir Kári

Danska meistaraliðið Aalborg í handknattleik, undir stjórn Arons Kristjánssonar, hefur tryggt sér þjónustu króatíska landsliðsmannsins Lovro Jotic fyrir komandi tímabil.

Jotic er 22 ára gamall og getur bæði leikið sem vinstri skytta og leikstjórnandi, en hann kemur til Aalborg frá króatísku meisturunum í Zagreb. Hann á að baki 10 A-landsleiki fyrir Króatíu.

Þá hefur Aalborg samið við hinn 24 ára gamla hornamann Jacob Hessellund sem kemur frá Frederikshavn og með því er hópur liðsins fyrir komandi tímabil orðinn klár að sögn Jan Larsen, framkvæmdastjóra Aalborg.

Undir stjórn Arons hjá Aalborg leika þeir Arnór Atlason og Janus Daði Smárason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert