Ólafur Jóhann heim í KA

Ólafur Jóhann Magnússon og Stefán Árnason þjálfari.
Ólafur Jóhann Magnússon og Stefán Árnason þjálfari. Ljósmynd/KA

Ólafur Jóhann Magnússon hefur skrifað undir tveggja ára samning við KA og mun taka slaginn með liðinu í 1. deildinni í handknattleik undir stjórn Stefáns Árnasonar.

Ólafur er 24 ára gamall og uppalinn í KA. Hann lék upp yngri flokka KA og var svo í 2. flokki Akureyrar áður en hann flutti suður og gekk í raðir Fram. Þar vakti hann mikla athygli sem rétthentur hægri hornamaður í Íslandsmeistaraliði Framara árið 2013.

Ólafur var að mestu í fríi frá handbolta síðustu mánuði en í tilkynningu frá KA er lýst yfir mikilli ánægju með heimkomu hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert