Geir velur afrekshóp

Haukamaðurinn Hákon Daði Styrmisson er í afrekshópi Geirs Sveinssonar.
Haukamaðurinn Hákon Daði Styrmisson er í afrekshópi Geirs Sveinssonar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Geir Sveinsson þjálfari karlalandsliðsins í handknattleik hefur valið afrekshóp karla sem æfir 25.-28. október næstkomandi. Hópurinn er að mestu leyti skipaður leikmönnum úr Olís-deildinni.

Þessi hópur er fyrst og fremst hugsaður til undirbúnings fyrir þá leikmenn sem hugsanlega gætu komið inn í A-landsliðið á næstu árum. Einar Guðmundsson stýrir æfingum hópsins.

Hópurinn er þannig skipaður:

Anton Rúnarsson, Val
Aron Dagur Pálsson, Stjörnunni
Ágúst Birgisson, FH
Birkir Benediktsson, Aftureldingu
Einar Sverrisson, Selfossi
Elvar Ásgeirsson, Aftureldingu
Grétar Ari Guðjónsson, ÍR
Hákon Daði Styrmisson, Haukum
Ísak Rafnsson, FH
Kristján Orri Jóhannsson, ÍR
Kristján Örn Kristjánsson, Fjölni
Magnús Óli Magnússon, Val
Teitur Einarsson, Selfoss
Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV
Viggó Kristjánsson, West Wien
Vignir Stefánsson, Val
Viktor Gísli Hallgrímsson, Fram
Þráinn Orri Jónsson, Elverum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert