Tveir lykilmenn ÍBV ekki með í dag

Sigurbergur Sveinsson verður ekki með ÍBV í dag.
Sigurbergur Sveinsson verður ekki með ÍBV í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

ÍBV fær heimsókn frá Aftureldingu í Olísdeild karla í handbolta kl. 18:00. Tveir af bestu leikmönnum Eyjaliðsins verða ekki með í leiknum, þar sem þeir eru í Reykjavík að bíða þess að konur sínar fæði börn. Vísir.is greinir frá. 

Sigurbergur ætlaði að fara með flugi til Vestmannaeyja í dag, en það var fellt niður vegna ófærðar. Afturelding fór hins vegar með Herjólfi til Eyja og fer leikurinn því fram samkvæmt áætlun. 

Hann verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert