Stórleikur Guðjóns og Löwen á toppinn

Guðjón Valur Sigurðsson átti stórleik í kvöld.
Guðjón Valur Sigurðsson átti stórleik í kvöld. Ljósmynd/Robert Spasovski

Rhein Neckar-Löwen valtaði yfir Füchse Berlin á heimavelli sínum í toppslag þýsku A-deildarinnar í handbolta í dag, 37:23. Guðjón Valur Sigurðsson átti stórleik fyrir Löwen og skoraði tíu mörk. Alexander Petersson bætti við tveimur og Bjarki Már Elísson skoraði eitt fyrir Füchse Berlin.

Fyrir leikinn var Füchse Berlín á toppi deildarinnar með 27 stig og Löwen stigi á eftir. Löwen fór því á toppinn með sigrinum og þar verður liðið þangað til á næsta ári, þar sem deildin er komin í jólafrí. 

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel höfðu betur gegn Minden, 30:27. Kiel er í 5. sæti deildarinnar með 23 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert