Messi: Hvor löpp 100 kíló

Faðir Lionels Messis, Jorge Messi, segir son sinn ekki hafa fundið sig í undanförnum tveimur leikjum með Argentínu vegna þess að hann sé einfaldlega búinn á því líkamlega.

„Hann er búinn á því í löppunum og líður eins og hvor löpp sé 100 kíló,“ sagði Jorge Messi.

Þessi argentínski knattspyrnusnillingur er maðurinn sem getur gert gæfumuninn fyrir Argentínu í komandi úrslitaleik gegn Þýskalandi. Messi hefur hins vegar ekki náð sér nægilega vel á strik í síðustu tveimur leikjum, hvorki með mark né stoðsendingu gegn Belgíu eða Hollandi en fyrir leikinn gegn Hollandi hafði Messi verið áberandi í liði Argentínu og skorað fjögur mörk.

Menn segja Messi vera þreyttan.
Menn segja Messi vera þreyttan. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert