Robben þakkar brasilísku þjóðinni

Arjen Robben með bronsverðlaunin um hálsinn í kvöld.
Arjen Robben með bronsverðlaunin um hálsinn í kvöld. AFP

Hollendingurinn Arjen Robben átti góðu gengi að fagna á heimsmeistaramótinu í Brasilíu þar sem lið hans endaði í þriðja sæti eftir 3:0-sigur á Brasilíu fyrr í kvöld. Hann skilur sáttur við mótið.

„Ég vil þakka brasilísku þjóðinni. Það hefur verið mikill heiður að taka þátt í þessu móti og enn sérstakara að hafa verið viðstaddur stuðning brasilísku stuðningsmannanna. Þetta var frábær leið til að enda mótið og við áttum þriðja sætið fyllilega skilið,“ sagði Arjen Robben í leikslok.

„Þetta var erfiður leikur fyrir þá, sérstaklega andlega. Við óskum þeim alls hins besta í framtíðinni. Ég hlakka til að halda áfram að spila fyrir þjóð mína og ætla að halda því áfram á meðan líkaminn er í standi,“ sagði Robben.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert