Frakkar skoruðu 47 mörk gegn Ástralíu

Úr leik Frakka og Úkraínu í gær á HM.
Úr leik Frakka og Úkraínu í gær á HM. AP

Frakkar áttu ekki í vandræðum með að leggja Ástralíu að velli í B-riðli heimsmeistaramótsins i handknattleik í dag. Frakkar skoruðu 47 mörk gegn 10 mörkum Ástralíu en staðan í hálfleik var 25:5. Frakkar hafa unnið báða leiki sína í B-riðli til þessa með yfirburðum en á eftir eigast við Ísland og Úkraína í B-riðli.

Úrslit dagsins:

A-riðill.

Grænland - Túnis 20:36

B-riðill

Ástralía - Frakkland 10:47

C-riðill

Brasilía - Pólland 23:31

D-riðill

Katar - Spánn 18:41

F-riðill

Marokkó - Rússland 19:35

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert