Njarðvíkingar halda sínu striki

Njarðvík lagði Snæfell að velli, 77:67, í stórleik kvöldsins í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Haukar komust af botninum með sigri á Fjölni, 78:72, í fallslag í Hafnarfirði. Skallagrímur sigraði Tindastól á Sauðárkróki, 110:94, og KR lagði Þór í Þorlákshöfn, 110:80.

Dimitar Karadowski skoraði 25 stig fyrir Skallagrím á Sauðárkróki, Jovan Zadrevski 24 og Pétur Sigurðsson 22. Milojica Zekovic skoraði 26 stig fyrir Tindastól, Svavar Birgisson 19 og Ísak Einarsson 18.

Tyson Patterson skoraði 31 stig fyrir KR í Þorlákshöfn og Jeremiah Sola 27. David Aliu skoraði 31 stig fyrir Þórsara og Damon Bailey og Robert Hodgson 13 hvor.

Jeb Ivey skoraði 23 stig fyrir Njarðvík gegn Snæfelli og Brenton Birmingham 17. Justin Shouse gerði 27 stig fyrir Snæfell o gHlynur Bæringsson 16.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert