Pippen í sænsku úrvalsdeildina

Scottie Pippen.
Scottie Pippen. AP

Scottie Pippen, einn þekktasti körfuknattleiksmaður sögunnar, mun leika með sænska úrvalsdeildarliðinu Sundsvall Dragons í janúar á næsta ári. Pippen, sem er 42 ára gamall, var m.a. í hinu sigursæla Chicago Bulls liði í NBA-deildinni þar sem að Michael Jordan lék aðalhlutverkið.


Pippen varð meistari með Bulls, 1990–91, 1991–92, 1992–93, 1995–96, 1996–97, og 1997–98. Hann mun aðeins leika einn leik með Sundsvall Dragons, gegn Akropol þann 11. janúar. Pippen hætti að leika í NBA-deildinni árið 2004 en hann lék með Houston Rockets 1998-1999 og Portland Trail Blazers 1999-2003.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert