Jón Arnór skoraði 6 stig

Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Sverrir Vilhelmsson

Jón Arnór Stefánsson skoraði 6 stig fyrir Lottomatica Róma í gær í 93:72-sigri liðsins gegn La Fortezza Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Jón Arnór lék í 16 mínútur og skoraði hann tvær þriggja stiga körfur í leiknum.

Rómverjar hafa nú unnið 11 leiki en tapað 6 það sem af er leiktíðar en liðið er með 22 stig í fjórða sæti deildarinnar. Siena er með fullt hús stiga í efsta sæti deildarinnar eftir 17 umferðir en liðið hefur enn ekki tapað leik. Næst verður leikið í ítölsku deildinni 5. janúar á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert