Körfuknattleikslandsliðið til Írlands

Jón Arnór Stefánsson er í íslenska landsliðshópnum.
Jón Arnór Stefánsson er í íslenska landsliðshópnum. mbl.is

Íslenska landsliðið í körfuknattleik karla æfir nú af krafti fyrir undankeppni Evrópumótsins sem hefst í haust. Á miðvikudag heldur landsliðið til Írlands hvar það tekur þátt í fjögurra þjóða móti ásamt Írum, Pólverjum og háskólaliði Notra Dame.

Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari, og Guðjón Skúlason aðstoðarmaður hans hafa gert nokkrar breytingará liðinu sem lék tvo æfingaleiki gegn Litháení júní. Jón Arnar Stefánsson, Friðrik Stefánsson og Fannar Ólafsson koma inn í stað þeirra Harðar Axels Vilhjálmssonar, Finns Magnússonar og Jóhanns Ólafssonar.

Liðið er þannig skipað:

Fannar Ólafsson

Friðrik Stefánsson

Sigurður Þorsteinsson

Helgi Magnússon

Hlynur Bæringsson

Sigurður Þorvaldsson

Logi Gunnarsson

Jón Arnór Stefánsson

Jakob Örn Sigurðsson

Páll Axel Vilbergsson

Magnús Þór Gunnarsson

Sveinbjörn Claessen
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert