Jón Arnór Stefánsson segir sigur KR á ÍR í kvöld hafa verið sannfærandi enda urðu lokatölurnar 94:79.
,,Já ég er alveg sáttur við okkar frammistöðu. Fimmtán stiga sigur og mér fannst þetta aldrei spurning um að við myndum vinna. Þetta var bara fyrsti leikurinn í deildinni og liðið á mikið inni,“ sagði Jón Arnór í samtali við mbl.is en hann var að leika sinn fyrsta deildarleik á Íslandi í sex ár.
Fjallað er um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.