Kobe með 41 stig í sigri Lakers

Snillingurinn Kobe Bryant sækir að körfu Denver.
Snillingurinn Kobe Bryant sækir að körfu Denver. Reuters

LA Lakers sigraði Denver, 103:97, í þriðju viðureign liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Lakers er þar með komið yfir í einvígi liðanna, 2:1.

Leikurinn var jafn og spennandi en eins oft áður var það Kobe Bryant sem skipti sköpum fyrir Lakers. Hann skoraði úr fjórum vítaskotum á lokasekúndunum og innsiglaði sigur sinna manna. Kobe skoraði alls 41 stig í leiknum og næstur kom Pau Gasol með 20 stig og hann tók 11 fráköst.

Carmelo Anthony skoraði 21 stig fyrir Denver en hann náði aðeins að skora 3 stig í seinni hálfleik. Chauncey Billups kom næstur með 18 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert