Phil Jackson verður áfram með meistaralið Lakers

Phil Jackson og Kobe Bryant.
Phil Jackson og Kobe Bryant. Reuters

Phil Jackson hefur komist að samkomulagi við forráðamenn LA Lakers og mun hann stýra liðinu á næstu leiktíð. Lakers varð meistari í vor undir stjórn Jackson en hann á sjálfur 11 meistaratitla að baki sem þjálfari hjá Lakers og Chicago Bulls.

Jackson er sigursælasti þjálfari NBA deildarinnar frá upphafi en undir hans stjórn varð Chicago Bulls sex sinnum meistari á árunum 1991-1998. Hann tók við Lakers sumarið 1999 og fjórum sinnum hefur liðið orðið meistari undir hans stjórn á þeim tíma. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert