Verða KR-ingar fyrstir í undanúrslitin?

Sveinn Arnar Davíðsson og Martin Hermannsson eigast hér við.
Sveinn Arnar Davíðsson og Martin Hermannsson eigast hér við. mbl.is/Árni Sæberg

Deildarmeistarar KR-inga geta tryggt sér sæti í undanúrslitum Dominos-deildar karla í körfuknattleik í kvöld en tveir leikir fara fram í úrslitakeppni deildarinnar í kvöld.

KR tekur á móti Snæfelli í Frostaskjóli og með sigri verða KR-ingar fyrstir til að komast í undanúrslitin en þeir hafa unnið tvo sannfærandi sigra gegn Snæfellingum.

Í Grindavík eigast við Íslands- og bikarmeistarar Grindavíkur og Þór Þorlákshöfn en staðan í einvígi liðanna er jöfn, 1:1. Vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram.

Báðir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15 og verður fylgst með þeim í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert