Jakob í ham hjá Sundsvall

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 26 stig
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 26 stig Morgunblaðið/Ómar

Jakob Örn Sigurðarson var í miklum ham og skoraði 26 stig þegar Sundsvall sigraði Nässjö 92:72 í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Hlynur Bæringsson tók 11 fráköst og skoraði 9 stig. Ægir Þór Steinarsson gaf 10 stoðsendingar og skoraði 3 stig. Ragnar Nathanaelsson tók 6 fráköst og skoraði 4 stig fyrir Sundsvall.

Þá mættust Sigurður Þorsteinsson og Haukur Helgi Pálsson í kvöld. Lið Hauks, LF Basket, vann útisigur 83:63. Haukur skoraði 15 stig en hitti fremur illa í kvöld. Sigurður var með 9 stig fyrir Solna og tók 4 fráköst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert