Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig fyrir Unicaja Málaga og var stigahæstur þegar liðið mætti Fenerbahce í Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik í kvöld.
Unicaja varð engu að síður að sætta sig við tap, 68:60, eftir jafnan og spennandi leik. Þar með aukast raunir Jóns og félaga enn en þeir hafa tapað öllum fimm leikjum sínum á þessu stigi Meistaradeildarinnar þrátt fyrir afar gott gengi í spænsku deildinni.
Næsti leikur Unicaja í Meistaradeildinni er gegn Nizhny Novgorod frá Rússlandi þann 6. febrúar.