LeBron öflugur í sigri Cleveland

LeBron James.
LeBron James. AFP

Cleveland er komið í 2:0 í einvíginu gegn Atlanta í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA deildinni í körfuknattleik en liðin áttust við í Atlanta í nótt.

Cleveland fór með sigur af hólmi, 94:82, þar sem LeBron James skoraði 30 stig, átti 11 stoðsendingar og tók 9 fráköst. LeBron skoraði 11 af stigunum í þriðja leikhlutanum sem Cleveland vann, 30:17, og náði 20 stiga forskoti. Þennan mun náðu heimamenn ekki að brúa og Cleveland er komið í lykilstöðu. Iman Shumpert skoraði 16 stig fyrir Cleveland en hjá Atlanta var Dennis Schroder atkvæðamestur með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert