Síðasta tímabilið hjá Kobe Bryant

Kobe Bryant.
Kobe Bryant. AFP

Kobe Bryant leikmaður Los Angeles Lakers tilkynnti fyrir leik sinna manna gegn Indiana í nótt að hann muni leggja skóna á hilluna eftir tímabilið.

Bryant er 37 ára gamall sem hefur skráð nafn sitt stóru letri í sögu NBA-deildarinnar. Hann hefur fimm sinnum unnið NBA meistaratitilinn og er í þriðja sæti yfir stigahæstu leikmenn deildarinnar frá upphafi, hefur skorað 32.670 stig á ferlinum. Hann hefur leikið í 20 ár með LA Lakers og hefur enginn leikmaðurinn í sögu deildarinnar leikið jafn lengi með sama félaginu. Bryant hefur 17 sinnum verið valinn í stjörnuleik NBA og var kjörinn besti leikmaður deildarinnar árið 2008.

„Líkami minn veit hvenær á að kveðja,“ sagði Bryant sem var í tapliði Lakers í nótt gegn Indiana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert