Kristófer og félagar óstöðvandi - myndskeið

Kristófer Acox í leik með íslenska landsliðinu á Smáþjóðleikunum síðasta …
Kristófer Acox í leik með íslenska landsliðinu á Smáþjóðleikunum síðasta sumar. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Kristófer Acox og félagar hans hjá Furman háskólanum bar sigur úr býtum í áttunda leiknum í röð þegar liðið lagði UNC Greenwood að velli á heimavelli í gær. 

Lokatölur í leiknum urðu 79:72 Furman í vil gegn UNC Greenwood, en Kristófer Acox skoraði 15 stig og tók 8 fráköst í leiknum.

Furman á aðeins tvo leiki eftir í deildarkeppninni heima og getur mögulega verið fyrsta liðið í sögu riðilsins til að fara ósigrað á heimavelli í gegnum riðilinn. 

Her að neðan má sjá myndskeið þar sem Kristófer ræðir frábæran árangur liðsins í vetur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert