Jón Arnór og félagar úr leik þrátt fyrir sigur

Jón Arnór Stefánsson og félagar hans eru úr leik.
Jón Arnór Stefánsson og félagar hans eru úr leik. JOHN MACDOUGALL

Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Valencia sigruðu þýska liðið Oldenburg, 77:62, í Evrópubikarnum í körfuknattleik í kvöld.

Þrátt fyrir þetta er Valencia úr leik en Oldenburg var komið áfram fyrir leiki kvöldsins. Franska liðið Limo­ges CSP sigraði PAOK frá Grikklandi, 72:52, og komst áfram á kostnað Jóns og félaga.

Jón Arnór lék í rúmar 12 mínútur í leiknum, skoraði eitt stig, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu á þeim tíma.

Valencia var með undirtökin frá byrjun í kvöld en staðan að loknum fyrri hálfleik var 40:35 fyrir Valencia. Þeir gerðu svo út um leikinn í þriðja leikhluta sem þeir unnu með tólf stiga mun og úrslitin þar með ráðin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert