Finnur skaut mönnum skelk í bringu

Haukaparið Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon
Haukaparið Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon Eggert Jóhannesson

Facebook færsla Finns Atla Magnússonar, leikmanns körfuknattleiksliðs Hauka, skaut körfuknattleiksáhugamönnum skelk í bringu í dag. Lesa mátti út úr færslunni að kærasta hans, Helena Sverrisdóttir, sem einnig leikur með Haukum gæti ekki leikið með liðinu næstu vetur.

Finnur Atli og Helena festu kaup á íbúð nýverið og Finnur sagði á facebook síðu sinni að fjölskyldan væri að stækka. Lögðu menn þá saman tvo og tvo og fengu út að Helena væri ólétt og myndi því ekki leika með Haukum næsta vetur.

Hið rétta er hins vegar að Finnur og Helena hafa tekið að sér hund sem ætti ekki að hindra Helenu í því að leika með Haukum næsta vetur. Stuðningsmenn Hauka geta því andað léttar eftir að hafa tekið andköf fyrr í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert