Undirbúningur kominn á fullt skrið

Craig Pedersen er búinn að velja 41 leikmann.
Craig Pedersen er búinn að velja 41 leikmann. AFP

Craig Pedersen, þjálfari íslenska körfuboltalandsliðsins, hefur valið 41 leikmann fyrir æfingar sem hefjast í vikunni en undankeppni Evrópumótsins hefst í lok ágúst. Þeir landsliðsmenn sem spiluðu á EM á síðasta ári eru ekki í fyrsta æfingahópnum.

Pedersen hefur valið 22 leikmenn í fyrsta æfingahópinn en þeir leikmenn sem spiluðu á Evrópumótinu í Þýskalandi á síðasta ári eru ekki með í fyrsta hóp. Þá eru leikmenn U-20 ára landsliðsins ekki með í hópnum en þeir bætast við þegar Evrópumótinu í Grikklandi lýkur.

Pedersen mun skera niður hópinn um helgina og hefjast svo æfingar aftur á mánudaginn en þá mæta leikmennirnir sem spiluðu á Evrópumótinu í fyrra. Þessir leikmenn undirbúa sig svo fyrir æfingamót sem fer fram í Austurríki dagana 11. – 14. ágúst en Ísland mætir þar Póllandi og Slóveníu.

Fyrsti leikur í undankeppni EM er gegn Sviss 31. ágúst næstkomandi og svo koma leikir gegn Belgíu og Kýpur í kjölfarið.

Leikmannalistinn:

Ari Gylfason · FSu
Austin Magnus Bracey · Snæfell
Axel Kárason · Svendborg Rabbits, Danmörk
Björgvin Ríkharður Hafþórsson · ÍR
Björn Kristjánsson · KR
Breki Gylfason · Breiðablik
Brynjar Þór Björnsson · KR
Dagur Kár Jónsson · St. Francis / Stjarnan
Darri Hilmarsson · KR
Elvar Már Friðriksson · Barry University / Njarðvík
Emil Barja · Haukar
Eysteinn Bjarni Ævarsson · Höttur
Finnur Atli Magnússon · Haukar
Gunnar Ólafsson · St. Francis / Keflavík
Haukur Helgi Pálsson · Njarðvík
Hjálmar Stefánsson · Haukar
Hlynur Bæringsson · Sundsvall Dragons, Svíþjóð
Hörður Axel Vilhjálmsson · Rythmos BC, Grikklandi
Jakob Örn Sigurðarson · Boras Basket, Svíþjóð
Jón Arnór Stefánsson · Valencia, Spáni
Jón Axel Guðmundsson · Davidson / Grindavík
Kári Jónsson · Drexler / Haukar
Kristinn Pálsson · Marist University / Njarðvík
Kristófer Acox · Furman University / KR
Logi Gunnarsson · Njarðvík
Maciej Baginskij · Njarðvík
Martin Hermannsson · LIU / KR
Matthías Orri Sigurðarson · Colombia University / ÍR
Ólafur Ólafsson · St. Clement, Frakklandi
Pavel Ermolinskij · KR
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Þór Þorlákshöfn
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · Doxa Pefkon, Grikklandi
Snorri Hrafnkelsson · KR
Stefán Karel Torfason · Snæfell
Tómas Heiðar Tómasson Holton · Stjarnan
Tómas Hilmarsson · Stjarnan
Tryggvi Þór Hlinason · Þór Akureyri
Valur Orri Valsson · Keflavík
Viðar Ágústsson · Tindastóll
Ægir Þór Steinarsson · CB Penas Huesca, Spáni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert