Fótboltamenn fyrir körfuboltamann

Barcelona er með mörg lið í fremstu röð í ýmsum …
Barcelona er með mörg lið í fremstu röð í ýmsum íþróttagreinum. AFP

Barcelona hefur fengið til sín ungverskan landsliðsmann í körfuknattleik, Ádám Hanga, sem lék með Laboral Kutxa á Spáni á síðasta tímabili. Það sérstaka við þau félagaskipti er að Barcelona lætur af hendi tvo knattspyrnumenn í staðinn.

Laboral Kutxa er frá borginni Vitoria-Gasteiz í Baskahéraði Norður-Spánar en þaðan er líka knattspyrnuliðið Deportivo Alavés sem er nýliði í efstu deild á Spáni á komandi keppnistímabili.

Eigendur Laboral og Alavés eru þeir sömu og niðurstaðan úr viðræðum við Barcelona vegna körfuboltamannsins Hanga var sú að hluti af viðskiptunum væri að Alavés fengi knattspyrnumennina Adrian Otrola og Sergio Ayala lánaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert