Útisigur hjá Ægi Steinars

Ægir Þór Steinarsson
Ægir Þór Steinarsson mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Ægir Þór Steinarsson og Ragnar Nathanaelsson voru báðir á ferðinni í b-deild spænska körfuboltans í kvöld. Ægir í sigurliði en Ragnar í tapliði.

San Pablo sigraði CB Prat á útivelli 73:65 og spilaði Ægir í 24 mínútur hjá San Pablo. Hann skoraði 3 stig, tók 5 fráköst, stal boltanum einu sinni og gaf eina stoðsendingu. 

Caceres fór til Oviedo og heimsótti Union Financiera. Heimaliðið hafði betur 88:78 en Ragnar spilaði í fimm mínútur hjá Caceres. Ragnar nýtti tímann sem hann fékk vel og tók 3 fráköst og skoraði 2 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert