Tyson-Thomas gerði 52 stig

Carmen Tyson-Thomas var óstöðvandi gegn Grindavík í kvöld en hér …
Carmen Tyson-Thomas var óstöðvandi gegn Grindavík í kvöld en hér er hún í bikarúrslitaleik á móti Grindavík með liði Keflavíkur 2015. mbl.is/Ómar Óskarsson

Carmen Tyson-Thomas slær ekki slöku við hjá nýliðum Njarðvíkur í Dominos-deild kvenna í körfubolta og skoraði 52 stig þegar liðið skellti Grindavík á útivelli í kvöld 86:70. 

Njarðvíkingum var spáð neðsta sæti deildarinnar í vetur en nýliðarnir hafa blásið á slíkar hrákspár og hafa einfaldlega unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni. 

Thomas skoraði 52 stig, tók 12 fráköst og gaf 7 stoðsendingar á samherja sína í kvöld. Ashley Grimes skoraði 34 stig fyrir Grindavík sem leikur þessa dagana án Ingibjargar Jakobsdóttur og Ingunnar Emblu Kristínardóttur sem eru meiddar. 

Úrslit kvöldsins: 

Grindavík - Njarðvík 70:86

Stjarnan - Valur 71:62

Haukar - Snæfell 42:69

Keflavík - Skallagrímur 81:70

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert