Leikmenn og þjálfarar bæði Grindavíkur og KR greiddu fyrir miða inn á leikinn sem liðin spiluðu í Grindavík í gærkvöld, í Dominos-deild karla í körfubolta.
Allur ágóði af miðasölunni rennur óskertur til fjölskyldu Ölmu Þallar Ólafsdóttur sem lést í bílslysi á Grindavíkurvegi í síðustu viku, og vildu leikmenn og þjálfarar sýna sinn stuðning eins og aðrir sem mættu á leikinn í gær.
KR vann nauman sigur í leiknum, 80:78, eftir mikla spennu.
Leikmenn borga inn í Grindavík,ágóði miðasölu til fjölskyldu stúlkunnar sem lést í slysinu fyrir skömmu #dominos365 pic.twitter.com/vPBIRPIoQy
— Smári Jökull Jónsson (@smarijokull) January 19, 2017