Óvæntur sigur hjá New York

Carmelo Anthony var öflugur í sigri New York í nótt.
Carmelo Anthony var öflugur í sigri New York í nótt. AFP

Carmelo Anthony og félagar hans í New York Knicks fögnuðu óvæntum sigri gegn San Antonio Spurs í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

New York vann fjögurra stiga sigur, 94:90, gegn liðinu sem hefur næstbesta vinningshlutfallið í deildinni á heimavelli sínum í Madison Square Garden. Carmelo Anthony skoraði 25 stig og tók 7 fráköst, Derrick Rose var með 18 og Kristaps Porzingis 16. Kawhi Leonard var stigahæstur hjá SA Spurs með 36 stig og LaMarcus Aldridge var með 15.

Í Toronto hrósaði Detroit sigri gegn Toronto Raptors í spennandi leik, 102:101. Kentavious Caldwell-Pope skoraði fimm af 21 stigi sínu á síðustu mínútu leiksins og þar af þriggja stiga körfu þegar um 13 sekúndur voru til leiksloka.

Úrslitin í nótt:

Minnesota - Chicago 117:89
Toronto - Detroit 101:102
New York - San Antonio Spurs 94:90
Sacramento - New Orleans 105:99

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert