Eigum að geta mun betur

Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, var vonsvikinn eftir leik sinna kvenna gegn Snæfelli í 21. umferð Dominos-deildarinnar kvöld. Leikur liðsins var ekki góður og Sverrir viðurkenndi það fúslega í viðtali eftir leik og þurfti hann að sætta sig við 62:57 tap.

Sverrir sagði mikið vanta af framlagi frá mörgum leikmönnum þetta kvöldið. Sverrir var þó yfirvegaður og sagðist ætla að fara yfir þetta með leikmönnum inni í klefa og að þær myndu sjálfar fara yfir þetta með sjálfum sér heima fyrir.

Sverrir Þór Sverrisson.
Sverrir Þór Sverrisson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert