Ragnar í mikilli fallbaráttu

Ragnar Nathaníelsson.
Ragnar Nathaníelsson. mbl.is/Skúli B. Sigurðsson

Körfuboltamaðurinn Ragnar Nathaníelsson skoraði sex stig fyrir Albacete í 74:67 tapi gegn Navarra í spænsku C-deildinni í körfubolta í dag. Albacete er neðst í deildinni með sex sigra og 20 töp. 

Ragnar hefur verið að skora 5,5 stig að meðaltali með Albacete í vetur og spilar hann rúmlega 17 mínútur í leik. 

Eftir ágætisbyrjun í deildinni hefur liðið aðeins unnið einn leik af síðustu 11 leikjum sínum. Ragnar og félagar þurfa því að hrökkva í gang fyrr frekar en síðar, enda aðeins fjórir leikir eftir af tímabilinu og fall um deild möguleiki. Liðið er þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert