Úrslitaeinvígið hefst í kvöld

Aaryn Ellenberg og félagar hennar hjá Snæfelli mæta Keflavík í …
Aaryn Ellenberg og félagar hennar hjá Snæfelli mæta Keflavík í fyrsta leik liðanna í úrslitum Dominos-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Snæfell og Keflavík hefja baráttu sína um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna þegar liðin mætast í Stykkishólmi klukkan 19.15 í kvöld.

Liðin urðu jöfn að stigum með 44 stig í deildarkeppninni í vetur og því allt útlit fyrir spennandi viðureign. Snæfell varð deildarmeistari þar sem liðið hafði betur í innbyrðisviðureignum sínum við Keflavík á tímabilinu.

Snæfell fór nokkuð örugglega áfram í úrslitin eftir 3:0-sigur sinn gegn Stjörnunni í undanúrslitum. Það var hins vegar meiri spenna í rimmu Keflavíkur gegn Skallagrími, en Keflavík tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu með sigri í oddaleik liðanna.

Leikur Snæfells og Keflavíkur í kvöld verður í beinni textalýsingu á mbl.is.

Nýjar fréttir kl. 11.50:

Leiknum hefur verið frestað vegna veðurs og hann leikinn á þriðjudagskvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert