Íslenska landsliðið í körfuknattleik skipað leikmönnum 20 ára og yngri mætir Ísrael í átta liða úrslitum á Evrópumótinu í Grikklandi og fer leikurinn fram á föstudaginn.
Eins og fram kom á mbl.is fyrr í dag unnu íslensku strákarnir frábæran sigur gegn Svíum, 73:39, í 16-liða úrslitunum og Ísraelsmenn voru rétt í þessu að leggja Ítali að velli, 79:71.