Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri mátti þola tap gegn Ísrael, 74:54, í átta liða úrslitum á Evrópumótinu í Grikklandi í dag.
Ísrael var 15:14 yfir eftir fyrsta leikhluta og bætti jafnt og þétt við forskotið eftir því sem leið á leikinn. Tryggvi Snær Hlinason var stigahæstur í íslenska liðinu með 12 stig og hann tók auk þess 14 fráköst.
Kristinn Pálsson og Þórir Þorbjarnarson voru með tíu stig hvor. Ísland leikur um 5.-8. sætið á næstu tveimur dögum. Ísland leikur gegn tapliðinu í leik Frakka og Serba í næstsíðasta leik mótsins.