Tap fyrir Pólverjum í hörkuleik

Veigar Hlynsson sækir að körfunni.
Veigar Hlynsson sækir að körfunni. Ljósmynd/FIBA

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik skipað leikmönnum 16 ára og yngri tapaði í dag fyrir Póllandi 62:58, í leik um 9.-12. sætið á EM U16 ára landsliða í Búlgaríu.

Íslenska liðið var undir í hálfleik, 37:29, en komst svo yfir fyrir fjórða og síðasta leikhlutann 49:48. Í honum voru Pólverjarnir hins vegar sterkari og unnu fjögurra stiga sigur 62:58.

Veigar Hlynsson var stigahæstur hjá Íslandi með 17 stig, auk þess sem hann tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Ísland mun nú spila um 13.-16. sæti á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert