Frábær lokasprettur strákanna

Veigar Hlynsson sækir að körfunni.
Veigar Hlynsson sækir að körfunni. Ljósmynd/FIBA

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik skipað leikmönnum 16 ára og yngri mun spila um 13. sætið á Evrópumótinu sem fram fer í Búlgaríu. Þetta var ljóst eftir sigur á Makedóníu í dag, 70:66.

Ísland var þremur stigum undir í hálfleik, 39:36, og staðan var enn erfiðari fyrir fjórða og síðasta leikhlutann þegar Makedónía var yfir 59:48. Fjórði og síðasti leikhlutinn var hins vegar frábær hjá strákunum, Makedónía skoraði þar aðeins sjö stig og Ísland tryggði sér sigurinn 70:66.

Veigar Hlynsson var stigahæstur hjá Íslandi með 22 stig. Ísland mun spila um 13. sætið í mótinu en þar verður mótherjinn annað hvort Búlgaría eða Portúgal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert